Sjálfbærnimarkmið Sameinuðu þjóðanna
Sjálfbærnimarkmið Sameinuðu þjóðanna eða Heimsmarkmiðin eru 17 markmið sem öll aðildarríki Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykktu þann 25. september 2015. Markmiðin, sem gilda á tímabilinu 2016-2030, eru 17 talsins með 169 undirmarkmið og taka bæði til innanlandsmála sem og alþjóðasamstarfs á gildistímanum. Markmiðin taka við af Þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna fyrir árin 2000-2015. Árangur verður metinn miðað við tilteknar mælistikur, líkt og fyrir Þúsaldarmarkmiðin.[1]
Aðalsmerki heimsmarkmiðanna er að þau eru algild. Aðildarríkin hafa skuldbundið sig til þess að vinna skipulega að innleiðingu þeirra bæði á innlendum og erlendum vettvangi út gildistíma þeirra. Markmiðin eru samþætt og órjúfanleg og mynda jafnvægi milli þriggja stoða sjálfbærrar þróunar; hinnar efnahagslegu, félagslegu og umhverfislegu. Þau fela einnig í sér fimm meginþemu sem eru mannkynið, jörðin, hagsæld, friður og samstarf. Aðalinntak þeirra er jafnframt að engir einstaklingar eða hópar verði skildir eftir.[2]
Þátttaka ólíkra aðila
[breyta | breyta frumkóða]Sjálfbærnimarkmiðin eru margþætt og metnaðarfull og krefjast skipulagðrar vinnu af hálfu stjórnvalda auk þátttöku og samstarfs ólíkra hagsmunaaðila. Heimsmarkmiðin eru því þróuð í samstarfi milli ríkja og forstjóra og leiðtoga í atvinnulífinu, á milli frjálsra félaga samtaka og fjölmiðla og á milli skóla og menntastofnana víða um heim.
Íslensk þátttaka
[breyta | breyta frumkóða]Á Íslandi hefur ríkisvaldið undir forystu forsætisráðuneytisins, leitt vinnu að Heimsmarkmiðunum. Allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa einhver af markmiðunum á sinni könnu. Ríkisvaldið hefur unnið með sveitarfélögum og atvinnulífinu í gegnum félagasamtökin Festu og Almannaheill varðandi fræðslu fyrir félagasamtök.[3]
Sveitarfélög á Íslandi hafa sýnt metnað til að stíga stór skref í að vinna að Heimsmarkmiðunum og uppfylla Parísarsamninginn um takmörkun útblásturs gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu. Aðlaga þurfi íslenskt samfélag að þeim breytingum sem þegar hafa átt sér stað og fyrirséðar eru vegna loftslagsbreytinga.[4] Þann 19. júní 2019 var stofnaður nýr samstarfsvettvangur um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og loftslagsmál á vegum Samtaka íslenskra sveitarfélaga.[5]
Ýmis einkaðilar og félagasamtök á Íslandi hafa skuldbundið sig að vinna að Heimsmarkmiðunum sem leiðarvísi að betra samfélagi.[6]
Markmiðin 17
[breyta | breyta frumkóða]- Fátækt: Að binda enda á fátækt í öllum myndum alls staðar.
- Hungur og fæðuöryggi: Að binda enda á hungur, tryggja fæðuöryggi og bætta næringu og stuðla að sjálfbærum landbúnaði.
- Góð heilsa og vellíðan: Að tryggja góða heilsu og vellíðan allra aldurshópa.
- Menntun: Að tryggja gæðamenntun án aðgreiningar með jafnræði að leiðarljósi og skapa tækifæri til símenntunar fyrir alla.
- Jafnrétti kynjanna og valdefling kvenna: Tryggja jafnrétti kynjanna og valdeflingu allra kvenna og stúlkna.
- Vatn og hreinlætisaðstaða: Tryggja aðgengi að vatni og sjálfbæra nýtingu þess, og hreinlætisaðstöðu fyrir alla.
- Orka: Tryggja aðgengi að áreiðanlegri, sjálfbærri og hreinni orku á viðráðanlegu verði fyrir alla.
- Hagvöxtur: Stuðla að varanlegum sjálfbærum hagvexti án aðgreiningar, fullri, arðbærri og mannsæmandi atvinnu fyrir alla.
- Innviðir, iðnvæðing: Byggja upp trygga innviði, styðja við sjálfbæra iðnþróun án aðgreiningar og næra nýsköpun.
- Ójöfnuður: Draga úr ójöfnuði innan ríkja og milli þeirra.
- Borgir: Gera borgir og aðrar mannabyggðir öruggar, tryggar og sjálfbærar án aðgreiningar.
- Sjálfbær neysla og framleiðsla: Tryggja sjálfbær framleiðslu- og neyslumynstur.
- Loftslagsbreytingar: Grípa til bráðaaðgerða til að berjast gegn loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra.
- Úthöfin: Vernda og nýta úthöfin, sjó og sjávarauðlindir á sjálfbæran hátt.
- Líffjölbreytni, skógar, skógaeyðing: Vernda, endurheimta og stuðla að sjálfbærri nýtingu vistkerfa á landi, stýra skógum á sjálfbæran hátt, berjast gegn gróðureyðingu, og stöðva eða tefja landeyðingu og eyðingu líffjölbreytni.
- Friður og réttlæti: Stuðla að friðsælum samfélögum án aðgreiningar fyrir sjálfbæra þróun, gefa öllum aðgang að réttlæti og koma á fót skilvirkum, ábyrgum stofnunum án aðgreiningar á öllum stigum.
- Samvinna: Styrkja tækifæri til að útfæra og efla alþjóðasamstarf um sjálfbæra þróun.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Félag Sameinuðu þjóðanna. „Heimsmarkmiðin“. Sótt 5. mars 2021.
- ↑ Forsætisráðuneytið. „Heimsmarkmiðin um sjálfbæra þróun“. Forsætisráðuneytið. Sótt 5. mars 2021.
- ↑ Kynningarblað Fréttablaðsins (30. október 2020). „Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Leiðarvísir að betra samfélagi“. Torg. bls. 1-2. Sótt 6. mars 2021.
- ↑ Samband íslenskra sveitarfélaga. „Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna“. Samband íslenskra sveitarfélaga. Sótt 6. mars 2021.
- ↑ Samband íslenskra sveitarfélaga. „Loftslagsmál og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Samstarfsvettvangur sveitarfélaganna um loftslagsmál og heimsmarkmiðin“. Samband íslenskra sveitarfélaga. Sótt 6. mars 2021.
- ↑ Kynningarblað Fréttablaðsins (30. október 2020). „Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Leiðarvísir að betra samfélagi“. Torg. Sótt 6. mars 2021.