Loeb Classical Library
Loeb Classical Library er ritröð, sem er gefin út af Harvard University Press. Í ritröðinni eru gefnir út allir helstu bókmennta- heimspeki- og vísindatextar klassískrar fornaldar, þ.e. á forngrísku og latínu. Í bókunum eru textarnir bæði á frummálinu, hægra megin í hverri opnu, og í enskri þýðingu, vinstra megin í hverri opnu. Auk söguljóða og lýrísks kveðskapar, harmleikja og gamanleikja og rita um sagnfræði, landafræði, heimspeki, vísindi og læknisfræði, mælskufræði og ræðumennsku eru einnig gefin út verk þeirra kirkjufeðra, sem studdust mjög við heiðna menningu.
Ágóði vegna útgáfunnar er nýttur í námsstyrki fyrir framhaldsnema í klassískum fræðum við Harvard University.
Tilurð
[breyta | breyta frumkóða]James Loeb átti upphaflega hugmyndina að ritröðinni og stofnaði hana. T.E. Page, W.H.D. Rouse og Edward Capps ritstýrðu fyrstu bindunum, sem komu út hjá William Heineman and company árið 1912. Bækurnar voru frá upphafi innbundnar í grænu og rauðu litunum (grísku textarnir eru grænir en latnesku textarnir eru rauðir), sem einkenna bækurnar í dag. Síðan þá hefur mikill fjöldi bóka komið út í ritröðinni og og margar elstu þýðingarnar hafa veruð endurskoðaðar jafnvel nokkrum sinnum.
Viðtökur
[breyta | breyta frumkóða]Enda þótt fornfræðingar noti ógjarnan Loebs bækur (sem hafa einungis lágmarks apparatus criticus) og telji þær öðru fremur vera þýðingar með texta til hliðsjónar fremur en fræðilega útgáfu á textunum með þýðingu til hliðsjónar, og margir almennir lesendur séu lítt hrifnir af stílnum á ensku þýðingunum (sem er oft fórnað til þess að þýðingarnar megi vera eins nákvæmar og kostur er), eru Loeb útgáfurnar eigi að síður afar útbreiddar.
Árið 1917 skrifaði Virginia Woolf (í Times Literary Supplement):
- Loeb ritröðin, með grískunni eða latínunni öðrum megin og enskunni hinum megin, var sem gjöf frelsis ... Útgáfa ritraðarinnar viðurkenndi tilvist áhugamanneskjunnar og gerði hana virðingarverða ... Ekki er nægilega oft minnst á erfiðleikana sem grískan veldur, ef til vill vegna þess öðru fremur að sírenurnar sem lokka okkur á þessi hættulegu höf eru almennt fræðimenn [sem] hafa gleymt ... hvaða erfiðleikar þetta eru. En fyrir hina venjulegu áhugamanneskju eru þetta miklir og raunverulegir erfiðleikar; og við ættum að viðurkenna það og ákveða að vera aldrei án Loeb bókanna okkar.
Harvard University tók að öllu leyti við ritröðinni árið 1989 og á undanförnum árum hafa verið gefin út árlega fjögur eða fimm endurskoðuð bindi.
Árið 2001 hóf Harvard University Press útgáfu á nýrri ritröð bóka með svipuðu formi. Í ritröðinni I Tatti Renaissance Library koma út lykilverk frá miðöldum og endurreisnartímanum á frummálinu (venjulega latínu) með enskri þýðingu til hliðar; bækurnar eru innbundnar eins og Loeb bækurnar en eru bláar á litinn. (Bækurnar eru hins vegar í öðru broti.)
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]- Fyrirmynd greinarinnar var „Loeb Classical Library“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 30. apríl 2006.
Tengill
[breyta | breyta frumkóða]- The Loeb Classical Library Geymt 10 apríl 2010 í Wayback Machine hjá Harvard University Press