Listasafn ASÍ
Útlit
Listasafn ASÍ er listasafn Alþýðusambands Íslands. Safnið var stofnað utanum listaverkagjöf Ragnars í Smára 1. júlí 1961, en hann gaf sambandinu um 120 verk eftir íslenska listamenn.
Sýningarsalir safnsins eru í Ásmundarsal á Freyjugötu 41 á Skólavörðuholti í Reykjavík. Húsið var áður heimili og vinnustaður myndhöggvaranna og hjónanna Ásmundar Sveinssonar og Gunnfríðar Jónsdóttur.