Laxá (Kjós)
Útlit
(Endurbeint frá Laxá í Kjós)
Laxá er laxveiðiá í Kjós með upptök í Stíflisdalsvatni í Þingvallasveit og ósa í Hvalfirði. Í ánni er fossinn Þórufoss og gengur lax upp að þeim fossi. Lengd Laxár er 25 km.
Fyrsta laxaklak á Íslandi var reynt í Laxá árið 1884. Frumkvæði að þeirri tilraun átti Þorkell Bjarnason prestur á Reynivöllum en hann fékk hingað norræna fiskifræðinga og var kössum sem vatn gat runnið í gegnum komið fyrir í Laxá og í kassana settar 13 hrygnur og 18 hængar.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Laxá Geymt 24 júní 2008 í Wayback Machine
Tengill
[breyta | breyta frumkóða]- Openstreetmap Laxá í Kjós
-
Skafrenningur í Laxá, rétt fyrir ósa
-
Möðruvellir meðfram Laxá.
-
Þórufoss að vetri til
-
Mynni Laxár í Hvalfirði