Lárpera
Lárpera | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
![]() Ávöxtur og lauf lárperutrés
| ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Persea americana Mill. |
Lárpera eða avókadó (fræðiheiti: Persea americana) (Nahuatl Aguacatl: agua-kah-tl) er ávöxtur af lárperutré sem er upprunnið í Mexíkó. Það er blómplanta af ættinni Lauraceae. Tréð ber egglaga ávöxt sem kallast lárpera. Lárpera hefur verið ræktuð í mörg árþúsund.
Lárperutré verða 20 m og laufblöðin verða 12–25 sm löng. Perulega ávöxturinn er flokkuður sem ber en hann er 7 til 20 sm langur og vegur frá 100 til 1000 grömm og í honum er fræ sem er 5 - 6,4 sm langt.
Venjulega vaxa um 120 lárperur árlega á hverju lárperutré. Í ræktun þá er uppskera að meðaltali 7 tonn á hektara á ári en er sums staðar 20 tonn á hektara. Sum kvæmi af lárperutrjám þola frost, þau harðgerustu allt að -6 C°, en þó aðeins í stuttan tíma. Það tekur 5-15 ár fyrir lárperutré að byrja að blómstra.