Kristín Ólafsdóttir - Ég einskis barn er
Útlit
Ég einskis barn er | |
---|---|
SG - 552 | |
Flytjandi | Kristín Á. Ólafsdóttir |
Gefin út | 1970 |
Stefna | Dægurlög |
Útgefandi | SG - hljómplötur |
Hljóðdæmi | |
Kristín Á. Ólafsdóttir er 45 snúninga hljómplata gefin út af SG - hljómplötum árið 1970.
Á henni flytur Kristín Á. Ólafsdóttir tvö lög. Ljósmynd á framhlið, Jóhanna Ólafsdóttir. Ljósmyndastofa Kristjáns Magnússonar.
Lagalisti
[breyta | breyta frumkóða]- Ég einskis barn er - Lag - texti: M. Foree/C. Coben - Jóhanna G. Erlingsson
- Ég mun aldrei framar elska neinn - Lag - texti: B. Bacharach - Ómar Ragnarsson
Ég einskis barn er
[breyta | breyta frumkóða]- Ég gekk um götu eina þar gömul stofnun var
- ég horfði um stund á börnin, er léttfætt hlupu þar.
- En einn var ekki í leiknum svo ég innti hann eftir því
- úr himinbláum augum blindum barst mér svar við því.
- Ég einskis barn er, ég einskis barn er,
- endalaust myrkur er áskapað mér
- Ég er einstæðingur sem engan á að,
- enginn vill sjá mig, ég einskis barn er.
- Fólkið velur börnin og fer með heim með sér
- en engum líst víst á mig, því verð ég alltaf hér.
- Það langar eflaust engan að eiga blindan son
- en það er erfitt ósjáandi að eiga enga von.
- Ég einskis barn er, ég einskis barn er,
- endalaust myrkur er áskapað mér
- Ég er einstæðingur sem engan á að,
- enginn vill sjá mig, ég einskis barn er.
- Ég þekki ei móðurfaðminn sem frið mér gæti veitt
- né föðurhönd sem leiddi mig, því ég sé ekki neitt.
- Ég vildi ég gæti dáið og dvalið himnum á
- þar alsjáandi léki mér við englabörnin smá.
- Ég einskis barn er, ég einskis barn er,
- endalaust myrkur er áskapað mér
- Ég er einstæðingur sem engan á að,
- enginn vill sjá mig, ég einskis barn er.