Kirnuætt
Útlit
Kirnuætt | ||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||
| ||||||||||||
Ættkvíslir | ||||||||||||
Kirnuætt (fræðiheiti: Brigantiaeaceae) er ætt af fléttum. Ekki er vitað hvaða ættbálki ættin tilheyrir. Ein tegund af kirnuætt finnst á Íslandi, hæðakirna (Brigantiaea fuscolutea).[1]
Útlit og einkenni
[breyta | breyta frumkóða]Tegundir af kirnuætt eru nokkuð líkar merlum (Caloplaca) í útliti. Báðir hópar hafa litarefnið parietín í askhirslum sínum sem litar þær appelsínugular. Gró tegunda af kirnuætt eru þó mjög frábrugðin merlugróum þar sem þau eru stór, glær, marghólfa og múrskipt og finnast aðeins eitt eða tvö gró í hverjum aski.[1]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ 1,0 1,1 1,2 Hörður Kristinsson. Íslenskar fléttur. Reykjavík: Hið íslenska bókmenntafélag. ISBN 978-9979-66-347-8