Fara í innihald

Kendall Jenner

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Kendall Jenner
Kendall á dreglinum
Fædd
Kendall Nicole Jenner

3. nóvember 1995 (1995-11-03) (28 ára)
Störffyrirsæta
Þekkt fyrirRaunveruleikaþáttinn Keeping Up with the Kardashians
Hæð1,79
ForeldrarKris Jenner
Caitlyn Jenner

Kendall Jenner (fædd 3. nóvember 1995) er fyrirsæta og er í raunveruleikaþáttum á Keeping Up With The Kardashians á E!

Kendall Jenner er elsta sameiginlega dóttir Bruce Jenner og Kris Jenner. Hún á yngri alsystur, Kylie Jenner. Hún á einig fjórar eldri hálfsystur, Casey Jenner, Kourtney Kardashian, Kim Kardashian og Khloé Kardashian. Einnig á hún fjóra eldri hálfbræður, Burton Jenner, Brandon Jenner, Brody Jenner og Rob Kardashian. Miðnafn hennar Nicole er í höfuðið á guðmóður hennar, Nicole Brown Simpson. Kendall gekk í einkaskóla, Sierra Canyon High School í Chatsworth með yngri systur sinni Kylie. Hún var einnig í klappstýruliðinu þar. Kendall byrjaði sem fyrirsæta 14 ára gömul og fyrsta takan hennar var fyrir línuna: Forever 21. Hún hefur einnig unnið fyrirsætustörf fyrir Nordstrom og Lucca Couture.

Fyrirsætuferill

[breyta | breyta frumkóða]

Kendall er með samning við Wilhelmina Models sem unglingsfyrirsæta. Hún sat fyrir hjá Forever 21 og sýndi línu þeirra „Twist“, sem kom í janúar 2010. Kendall vann einnig fyrirsætustarf fyrir Luca Couture. Í maí 2010 kom hún fyrir í blaðinu Teen Vogue og svo í mars 2010 kom hún fram í blaðinu Paper Magazine með systur sinni Kyle Jenner. Kendall kom fram sem fyrirsæta á tískuvikunni i New York þegar Marc Jacobs sýndi haust- og vetrarlínu sína 2014. Árið 2016 lenti Kendall í atviki þegar hún steig út úr aftursæti á bíl en ökumaður bílsins gleymdi að setja handbremsuna á, en hún slapp sem betur fer ómeidd.

Sjónvarpsferill

[breyta | breyta frumkóða]