Karlakórinn Goði - Goða kvartettinn (plata)
Útlit
Karlakórinn Goði - Goða kvartettinn | |
---|---|
T 13 | |
Flytjandi | Karlakórinn Goði - Goða kvartettinn |
Gefin út | 1975 |
Stefna | Sönglög |
Útgefandi | Tónaútgáfan |
Karlakórinn Goði - Goða kvartettinn er 33 snúninga LP hljómplata gefin út af Tónaútgáfunni árið 1975. Á henni flytur Karlakórinn Goði og Goða kvartettinn tólf dægurlög. Upptaka í stereó: Tónaútgáfan. Pressun: Soundtek Inc. Ljósmynd: Norðurmynd. Prentun: Valprent hf. Akureyri.
Lagalisti
[breyta | breyta frumkóða]Karlakórinn Goði
- Alþjóðlega kvennafarsárið - Lag - Texti: Shanty - Viktor A. Guðlaugsson - Einsöngur: Helgi R. Einarsson og Sigurður Sigurðsson
- Kveðja - Lag - Texti: Tékkneskt þjóðlag - Viktor A. Guðlaugsson - Einsöngur: Viktor A. Guðlaugsson
- Vor í maí - Lag - Texti: T. H. Morley - Viktor A. Guðlaugsson
- Ég leitaði blárra blóma - Lag - Texti: Gylfi Þ. Gíslason - Sigurður Þórarinsson - Einsöngur: Bragi Vagnsson
- Vögguljóð - Lag - Texti: J. A Ahlström - Viktor A. Guðlaugsson
- Kumba Yah - Lag - Texti: Þjóðlag frá Nígeriu
Goða kvartettinn
- Septemberkvöld - Lag - Texti: Þjóðlag frá Chile - Viktor A. Guðlaugsson
- Vestast í vesturbænum - Lag - Texti: Franskt þjóðlag - Sigurður Þórarinsson
- Lífið er gáta - Lag - Texti: Íslenskt þjóðlag
- Lísa - Lag - Texti: Calypso - Viktor A. Guðlaugsson
- Ég er frjáls - Lag - Texti: Amerískt þjóðlag - Viktor A. Guðlaugsson
- Hanna Sigga - Lag - Texti: Þjóðlag frá Suður-Ameríku - Viktor A. Guðlaugsson
Textabrot af bakhlið plötuumslags
[breyta | breyta frumkóða]Karlakórinn Goði og Goða kvartettinn senda nú frá sér aðra hljómplötu sína, en plata með þessum flytjendum kom fyrst á markaðinn á síðastliðnu hausti. Kórinn skipa menn úr fjórum hreppum milli Fljóts- og Vaðlaheiðar, og hefur aðsetur þeirra verið í Stórutjarnarskóla í Ljósavatnsskarði. Kórnum stjórnar sem fyrr tékkneski hljómsveitarstjórinn Róben Bezdek, sem nú er á ný horfinn til starfa í heimaborg sinni Prag, a.m.k. um stundarsakir, en auk stjórnunar hefur hann einnig útsett öll lögin á plötunni. Goða kvartettinn er skipaður kennurum úr Stórutjarnarskóla, þ.á.m. söngstjóranum og er raddskipun þannig:
1 tenór Viktor A Guðlaugsson 2 tenór: Bragi Vagnsson 1 bassi: Helgi R Einarsson 2 bassi: Róben Bezdek Hljóðfæraleikarar á plötunni eru: Sigurður Árnason leikur á flautu. Helgi R. Einarsson á gítar. Róben Bezdek á fiðlu. melodiku o.fl. Gunnar Tryggvason á bassa og Grímur Friðriksson á harmoniku. |
||
— NN
|