Fara í innihald

John Fowles

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

John Robert Fowles (31. mars 1927 – 5. nóvember 2005) var breskur rithöfundur sem er kenndur við breytinguna frá módernisma til póstmódernisma. Hann var undir áhrifum frá frönsku rithöfundunum Jean-Paul Sartre og Albert Camus.[1]

Fyrsta skáldsaga hans er Safnarinn frá 1963. Leikin kvikmynd var gerð eftir henni árið 1965. Þekktustu verk Fowles eru The Magus (1965) sem varð metsölubók á 7. áratugnum, og Ástkona franska lautinantsins (1969), ástarsaga sem gerist á Viktoríutímabilinu. Samnefnd kvikmynd var gerð eftir síðarnefndu bókinni árið 1981 með handrit eftir Harold Pinter, og Meryl Streep og Jeremy Irons í aðalhlutverkum.

Árið 2008 útnefndi breska dagblaðið The Times Fowles sem einn af 50 mestu rithöfundum Breta eftir 1945.[2]

Tvær bækur eftir John Fowles hafa verið þýddar á íslensku: Ástkona franska lautinantsins (The French Lieutenant's Woman) 1985 og Safnarinn (The Collector) 1991.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ Aubrey, James R. (1991). John Fowles: A Reference Companion. Greenwood Press. ISBN 0-313-26399-X.
  2. ↑ „The 50 greatest British writers since 1945“. The Times. 5. janúar 2008. Afrit af upprunalegu geymt þann 11.5.2008. Sótt 19. febrúar 2010.
  Þessi bókmenntagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.