Jason Lezak
Útlit
(Endurbeint frá Jason Edward Lezak)
Jason Edward Lezak (fæddur 12. nóvember 1975 í Irvine í Kaliforníu) er bandarískur sundmaður. Hann keppir í skriðsundi, auk þess sem hann á sæti í boðsundssveit Bandaríkjanna.
Lezak útskrifaðist frá Kaliforníuháskóla í Santa Barbara árið 1999.
Afrek
[breyta | breyta frumkóða]- Ólympíuleikarnir 2004
- Brons í 4x100 metra skriðsundsboðsundi
- Gull í 4x100 metra fjórsundsboðsundi
- Heimsmeistari 2005 í bæði 4x100 metra skriðsunds- og fjórsundsboðsundi með bandarísku sveitinni
- Ólympíuleikarnir 2008
- Gull í 4x100 metra skriðsundsboðsundi
- Brons í 100 metra skriðsundi
- Gull í 4x100 metra fjórsundsboðsundi