Alfreð Clausen syngur með Hljóma-tríóinu
Útlit
(Endurbeint frá IM 47)
Alfreð Clausen syngur með Hljóma-tríóinu | |
---|---|
IM 47 | |
Flytjandi | Alfreð Clausen, Jenni Jónsson, Ágúst Pétursson, Jóhann Eymundsson |
Gefin út | 1954 |
Stefna | Dægurlög |
Útgefandi | Íslenzkir tónar |
Alfreð Clausen syngur með Hljóma-tríóinu er 78-snúninga hljómplata gefin út af Íslenzkum tónum árið 1954. Á henni syngur Alfreð Clausen lögin Blítt og létt og Hreyfilsvalsinn með Hljóma-tríóinu. Tríóið skipuðu þeir Jenni Jónsson sem lék á trommur og harmonikkuleikararnir Ágúst Pétursson og Jóhann Eymundsson. Platan er hljóðrituð í mono. Upptaka: Ríkisútvarpið. Pressun: AS Nera í Osló.
Lagalisti
[breyta | breyta frumkóða]- Hreyfilsvalsinn - Lag og texti: Jenni Jónsson
- Blítt og létt - Lag - texti: Oddgeir Kristjánsson - Árni úr Eyjum - ⓘ