Jakob Hafstein og Ágúst Bjarnason - Glunta-söngvar
Útlit
(Endurbeint frá IM 100)
Jakob Hafstein og Ágúst Bjarnason syngja Glunta-söngva | |
---|---|
IM 100 | |
Flytjandi | Jakob Hafstein, Ágúst Bjarnason, Carl Billich |
Gefin út | 1957 |
Stefna | Dægurlög |
Útgefandi | Íslenzkir tónar |
Jakob Hafstein og Ágúst Bjarnason syngja Glunta-söngva er 78-snúninga hljómplata gefin út af Íslenzkum tónum árið 1957. Á henni syngja Jakob Hafstein og Ágúst Bjarnason Glunta-söngva númer 3 og 16. Carl Billich leikur undir. Platan er hljóðrituð í mono. Upptaka: Ríkisútvarpið. Pressun: AS Nera í Osló.
Lagalisti
[breyta | breyta frumkóða]- Vid brasan på Magisterns kammare - Lag og texti: Wennerberg
- Upsala är bäst - Lag og texti: Wennerberg - ⓘ
Gluntarne
[breyta | breyta frumkóða]Gunnar Wennerberg samdi 30 söngva frá 1847-1850 um háskólalífið í Uppsölum í Svíþjóð. Þessar söngvar eru kallaðar Gluntarne á frummálinu, en hétu gjarnan Gluntar eða Glunta-söngvar á Íslandi. Bassi og baritón-rödd túlka samtal tveggja stúdenta; „Glunten” sem er sá yngri og „Magistern” sem er öllu eldri og lífsreyndari. Oftast var sungið við píanóundirleik.