Fara í innihald

Hraundalsrétt

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Hraundalsréttir eru fjárréttir í mynni Hraundals á Mýrum, skammt frá eyðibýlinu Syðri-Hraundal. Réttin er margbreytileg bygging og liggja dilkarnir í ranghölum inn á hraunið. Hraundalsréttir voru á árum áður með fjölmennustu og þekktustu réttum landsins.

Sögur og sagnir

[breyta | breyta frumkóða]

Í ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar lýsir Eggert Hraundalsréttum ítarlega sem nokkurs konar markaði, þar sem komi saman bændur og sjómenn til að skiptast á sjávarafurðum og landbúnaðarvörum. Segir þar enn fremur að réttardagar séu þrír eða fjórir og sé þar stundum drykkjuskapur með tilheyrandi illdeilum og áflogum.

  • Björn Hróarsson (1994). Á ferð um landið, Borgarfjörður og Mýrar. Mál og menning. ISBN 9979-3-0657-2.
  Þessi landafræðigrein sem tengist Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.