Hrannar Már Gunnarsson
Hrannar Már Gunnarsson (fæddur 5. apríl 1988) er lögfræðingur frá lagadeild Háskóla Íslands og er lögfræðingur BSRB[1]. Hann var áður lögfræðingur Neytendasamtakanna um árabil og hefur átt sæti í úrskurðarnefndum, starfshópum og ráðum á sviði neytendaréttar og vinnuréttar. Hrannar var virkur í félagslífi Borgarholtsskóla og var m.a. í ræðuliði skólans sem fór alla leið í úrslit MORFÍs árið 2007 en laut í lægra hald fyrir ræðuliði Menntaskólans við Hamrahlíð. Árið 2014 var Hrannar einn af umsækjendum um stöðu útvarpsstjóra RÚV ohf.[2]
Hrannar er stuðningsmaður Víkings[3] og situr í stjórn knattspyrnudeildar félagsins.[4]
Hrannar skrifaði BA ritgerð á sviði skaðabótaréttar sem bar heitið Hæstiréttur og hálkuslysin[5] en meistararitgerð hans var á sviði leiguréttar.[6]
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Starfsfólk. BSRB
- ↑ „39 sækja um stöðu útvarpsstjóra - Viðskiptablaðið“. www.vb.is (bandarísk enska). Sótt 1. júlí 2019.
- ↑ „Stuðningsmenn Víkings leiðréttu "mistök" Pepsi-markanna og afhentu Róberti Pepsi-kassa og gjafabréf - Vísir“. visir.is. Sótt 1. júlí 2019.
- ↑ „Stjórn“, Víkingur, 29. júní 2019, sótt 1. júlí 2019
- ↑ Hrannar Már Gunnarsson (2013). Hæstiréttur og hálkuslysin.
- ↑ Hrannar Már Gunnarsson (2015). Vanefndir og vanefndaúrræði aðila leigusambands.