Hlutafleiða
Útlit
(Endurbeint frá Hlutdiffrun)
Hlutafleiða er afleiða falls, sem háð er fleiri en einni breytistærð. Þegar reiknuð er hlutafleiða falls, m.t.t. tiltekinnar breytu, er fallið deildað m.t.t. breytunnar, sem um ræðir, eins og hinar breyturnar væru fastar.
Ritháttur
[breyta | breyta frumkóða]Gerum ráð fyrir falli f:=f(x,y), háð tveimur breytum x og y:
Fyrsta stigs hlutafleiður:
- og
Annars stigs hlutafleiður:
- og
Annars stigs, blandaðar hlutafleiður:
- og
Fyrir föll, sem ekki eru fáguð, getur skipt máli í hvaða röð blandaðar hlutafleiður eru reiknaðar, því þarf að gera ráð fyrir að fxy ≠ fyx.
Stigull mættis er vigur þar sem hnitin eru allar fyrstu hlutafleiður mættisins.
Jafna, þar sem koma fyrir hlutafleiður af háðu breytunum, nefnist hlutafleiðujafna.