Kreppan mikla
Kreppan mikla var heimskreppa í viðskiptum og efnahagslífi sem skall á haustið 1929. Hún hófst í Bandaríkjunum og er oftast miðað við að upptök hennar megi rekja til 29. október 1929, þegar verðbréf féllu niður úr öllu valdi. Sá dagur hefur verið nefndur svarti þriðjudagurinn. Margar þjóðir brugðust við með því að leggja á innflutningstolla til að vernda eigið atvinnulíf og auk þess var algengt að tekin væri upp jafnvirðisverslun milli landa. Það þýddi að ekki var leyft að flytja inn vörur nema jafnmikið væri keypt á móti af framleiðsluvörum heimamanna. Mikill viðsnúningur varð í hagkerfum flestra iðnvæddra landa þegar seinni heimsstyrjöldin skall á árið 1939 og ríkisstjórnir þeirra gripu inn í hagkerfi þeirra til þess að geta stýrt framleiðslu hergagna.
Þróuð lönd sem þróunarlönd liðu vegna kreppunnar. Alþjóðaviðskipti minnkuðu, tekjur einstaklinga drógust saman og þar með skatttekjur, verðlagning og hagnaður. Sér í lagi átti það við um borgir og svæði þar sem þungaiðnaður var aðalatvinnugrein. Uppbygging og hagvöxtur staðnaði nær alveg í fjölda landa. Landbúnaður dróst saman vegna þess að verðið sem fékkst fyrir uppskeruna lækkaði um 60-80%. Framboð dróst því saman og þau svæði þar sem lítið framboð var á annarri atvinnu áttu erfiðast uppdráttar. Þróunin varð mismunandi eftir löndum. Í Bandaríkjunum varð til hið blandaða hagkerfi eftir að Franklin Roosevelt forseti samþykkti tillögur breska hagfræðingsins John Maynard Keynes um opinberar framkvæmdir. Í Þýskalandi komst Adolf Hitler til valda, byggði upp mikinn herafla og hóf seinni heimsstyrjöldina.
Áhrif á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]Í íslensku efnahagslífi varð kreppunnar vart ári eftir að hún skall á í Bandaríkjunum, en þá varð mikið verðfall á íslenskum útflutningsvörum og innflutningstollar erlendis ollu auk þess margháttuðum vandræðum. [1]
Atvinnuleysi jókst mikið og voru mörg hundruð Reykvíkingar atvinnulausir á veturna. Til að koma í veg fyrir vannæringu og hungur meðal hinna atvinnulausu settu söfnuðirnir í Reykjavík upp súpueldhús og gáfu þeim sem verst voru staddir mat.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Verðhrunið í Wall Street og kreppan; grein í Morgunblaðinu 1987
- Hvernig hafði kreppan áhrif á bókmenntir (félagslegt raunsæi)?; af Vísindavefnum Geymt 6 nóvember 2012 í Wayback Machine
- Heimskreppan á fjórða áratugnum; grein í Morgunblaðinu 1988
- Kreppan og krónufallið í Danmörku; grein í Morgunblaðinu 1933
- Ískyggilegar fjármálahorfur í Norðurálfu; grein í Morgunblaðinu 1931
- Launabilið milli lækna og verkamanna hefur minnkað um 108% síðan árið 1934; grein í Morgunblaðinu 1977
- ↑ Hvaða áhrif hafði kreppan mikla á Ísland og Íslendinga? Vísindavefurinn