Hangul

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Hangul ((한글) notað í Suður-Kóreu) eða Chosongul ((조선글) notað í Norður-Kóreu) er stafróf sem notað er til að rita kóresku.[1] Hangul var hannað á árunum 1443 og 1444 en kynnt fyrir kóresku þjóðinni árið 1446. Það var fyrir tilstilli þáverandi konung landsins, Sejong, að skriftin var hönnuð. Áður en Hangul kom til sögunnar töluðu Kóreumenn kóresku en skrifuðu mestmegnis á kínversku, sem er mjög frábrugðin kóresku. Stór hluti Kóreumanna var ólæs og þess vegna var það mikil bylting þegar byrjað var að rita kóresku með Hangul.

Hangul er einföld skrift og mun auðveldara að hana læra heldur en kínversku táknin. Sejong konungur er fyrir þessar sakir frægasti konungurinn í sögu Kóreu og prýðir 10.000 won seðilinn.

Hangul var þó notað saman við kínversk tákn (kölluð Hanja á kóresku) að verulegu leyti fram til ársins 1970, en kínversku táknin voru þá gjarna notuð á eftir kóreskum orðum til útskýringar og virka sem hálfgerð orðabókarskýring. Nú er Hangul notað nær eingöngu bæði í Suður-Kóreu og Norður-Kóreu en þó kemur fyrir að Hanja er sett í sviga til að skýra orð nánar, til dæmis í fréttablöðum og ritgerðum.

Kóresk börn þurfa enn að læra mikla kínversku í grunnskólum en mikið af kóreskum orðaforða er tekinn úr kínversku.

Þess má einnig geta að fyrir utan Kóreumenn er indónesískur ættbálkur sem notar Hangul.

Hvert tákn í Hangul er kallað Jamo. Til eru 29 tákn sem skiptast upp í

Þessum táknum er svo raðað saman þannig að mest eru þrjú jamo í einni samstæðu. Samstæðan myndar alltaf eitt atkvæði. Táknunum er raðað þannig upp að fyrst kemur samhljóði svo sérhljóði og síðast er skrifað endatákn sem er oftast líka samhljóði eða tvöfalt tákn. Skrifað er frá hægri til vinstri og frá toppi og niður innan samstæðunnar og sama á við um línur.

Hangul í Unicode[breyta | breyta frumkóða]

Það eru fjórar mismunandi leiðir til að skilgreina Hangul í Unicode. Maður getur valið hvort maður vill fá hvert tákn fyrir sig eða heila samstæðu og hvernig maður vill að hún birtist.

  • U+1100–U+11FF: Inniheldur öll tákn Hangul gömul og ný.
  • U+3130–U+318F: Hangul samvinnandi tákn
  • U+AC00-U+D7A3: Inniheldur allar nútíma samstæður Hangul.
  • U+FFA0–U+FFDF: Hangul samvinnandi tákn.
  1. http://www.wdl.org/en/item/4166