Gunnar Benediktsson
Útlit
Gunnar Benediktsson (9. október 1892 – 26. ágúst 1981) var íslenskur rithöfundur og prestur. Hann var skipaður prestur í Grundarþingi í Eyjafirði 1921, en lét af preststörfum 1931 og fékkst eftir það aðallega við ritstörf og kennslu. Hann flutti til Hveragerðis þar sem þá var að byggjast upp bær um 1940. Hann var um stutt skeið varaþingmaður Sameiningarflokks alþýðu - Sósíalistaflokksins og var einn af stofnendum Félags byltingarsinnaðra rithöfunda.