Guðmundur Gauti (plata)
Útlit
Guðmundur Gauti | |
---|---|
T 12 | |
Flytjandi | Guðmundur Gauti |
Gefin út | 1975 |
Stefna | Dægurlög |
Útgefandi | Tónaútgáfan |
Guðmundur Gauti er 33 snúninga LP hljómplata gefin út af Tónaútgáfunni árið 1975. Á henni flytur Guðmundur Gauti tólf lög. Upptaka í stereó: Tónaútgáfan. Pressun: Soundtek Inc. New York. Ljósmyndir: Fjölskylduljósmyndir. Prentun: Valprent hf Akureyri.
Lagalisti
[breyta | breyta frumkóða]- Kalli - Lag - Texti: M Leander, E J. Seago - Iðunn Steinsdóltir
- Ég man þann dag - Lag - Texti: Newbury - Bjarki Árnason
- Þér er falt þetta allt - Lag - Texti: Fishman, Donida - Iðunn Steinsdóttir
- Eitt sem alltaf lifir - Lag - Texti: Danver, Sigman, Gaiano - Iðunn Steinsdóttir
- Flóttinn - Lag - Texti:Reed, Mason - Herdís Guðmundsdóttir
- Vonleysi - Lag - Texti: Pace, Pilat, Panzeri, Mason - Bjarki Árnason
- Meðan þú bíður - Lag - Texti: Reed, Stevens - Iðunn Steinsdóttir
- Síðasti valsinn - Lag - Texti: Reed, Mason - Herdís Guðmundsdóttir
- Grænn ertu dalur - Lag - Texti: B. Gibb - Herdís Guðmundsdóttir
- Það væri dásamlegt - Lag - Texti: Mills, Reed - Birgir Ásgeirsson
- Ó Mary - Lag - Texti: Macauley, Mason - Bjarki Árnason
- Vorþrá - Lag - Texti: Reed, Mason - Bjarki Árnason
Textabrot af bakhlið plötuumslags
[breyta | breyta frumkóða]Guðmundur Gauti - Guðmundur Ó. Þorláksson er annar þeirra Gautlandsbræðra sem ómissandi þóttu á dansleikjum á norðurlandi hér áður fyrr. Þeir bræður stofnuðu síðar hljómsveitina Gauta á Siglufirði, sem átt hefur sívaxandi vinsældum að fagna. Einnig er Guðmundur þekktur fyrir söng sinn með Karlakórnum Visi. Á þessari plötu syngur Guðmundur lög sem Engilbert Humperdink og Tom Jones hafa gert vinsæl á undanförnum árum. Undirleik annast enskir hljómlistarmenn. Hljómsveitarstjóri er Allan Caddy, og er undirleikur hljóðritaður í London, en söngur Guðmundar er hljóðritaður á Akureyri. | ||
— NN
|