Fara í innihald

Grágæsaættkvísl

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá Grágæsir)
Gráar gæsir
Par grágæsa (Anser anser).
Par grágæsa (Anser anser).
Vísindaleg flokkun
Ríki: Dýraríki (Animalia)
Fylking: Seildýr (Chordata)
Flokkur: Fuglar (Aves)
Ættbálkur: Gásfuglar (Anseriformes)
Ætt: Andaætt (Anatidae)
Ættkvísl: Gráar gæsir (Anser)

Gráar gæsir (Einnig nefndar hvítar gæsir)(Ættkvísl: Anser) er ættkvísl gæsa sem bera ættkvíslarheitið Anser.

Tegundir úr þessum hópi eru ellefu, og deila flestar gráu eða hvítu litarfari. Algengt er að tegundir innan þessa hóps geti myndað blendinga, og mikið er af undirtegundum innan sumra tegunda hans.

Til grárra gæsa teljast eftirfarandi tegundir (sjá töflu 1).

Ljósmynd Íslenskt heiti Tvínefni
Akurgæs Anser fabalis
Blesgæs Anser albifrons
Fjallgæs Anser erythropus
Grágæs Anser anser
Heiðagæs Anser brachyrhynchus
Keisaragæs Anser canagicus
Mjallgæs Anser rossii
Snjógæs Anser caerulescens
Svenjugæs Anser cygnoides
Taumgæs Anser indicus
Túndrugæs Anser serrirostris