Friedrich August Wolf
Útlit
Friedrich August Wolf (15. febrúar 1759 – 8. ágúst 1824) var þýskur fornfræðingur, textafræðingur og bókmenntarýnir.
Wolf helgaði sig alla tíð að kennslu öðru fremur. Rit hans eru tiltölulega fá. Hann gaf út skýringarrit við Demosþenes (1789) og sex árum síðar Formála að Hómer (1795). Fyrir það rit er hann einkum þekktur. Í kjölfar útgáfunnar spruttu upp deilur milli Wolfs og Christians Gottlobs Heine, sem sakaði Wolf um ritstuld.