Forseti Ítalíu
Útlit
Forseti Ítalíu er þjóðhöfðingi Ítalíu og fulltrúi einingar þjóðarinnar samkvæmt stjórnarskránni. Hann er kjörinn af sameinuðu þingi Ítalíu (fulltrúadeild og öldungadeild) til sjö ára í senn. Þannig er tryggt að sama þing geti ekki kosið forseta tvö kjörtímabil í röð, þar sem þingið situr að hámarki í fimm ár. Hlutverk forseta er fyrst og fremst táknrænt og yfirleitt er um að ræða stjórnmálamenn sem starfað hafa lengi. Staðgengill forseta í fjarveru hans er forseti öldungadeildarinnar sem einnig getur farið með hlutverk forseta lýðveldisins við sérstakar aðstæður.
Núverandi forseti Ítalíu er Sergio Mattarella sem tók við embætti 3. febrúar 2015.