Fellafífill
Útlit
Fellafífill | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Hieracium alpinum | ||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||
|
Fellafífill (fræðiheiti: Hieracium alpinum) er evrasísk plöntutegund í körfublómaætt. Hann er ættaður frá Evrópu,[1] og hefur einnig fundist í Grænlandi.[2] Á Íslandi er hann algengur um allt land.[3]
Fellafífill verður um 25 sm hár, með blöðin að mestu í hvirfingu við jörð. Blöðin eru lensulaga, að 8 sm löng. Einn blómstöngull með yfirleitt eina blómkörfu, en stöku sinnum 2 til 3. Hver karfa með 80-120 gulum tungukrónum.[4]
Tilvísnair
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Altervista Flora Italiana, Sparviere alpino, Hieracium alpinum L. includes photos, drawings, and European distribution map
- ↑ Biota of North America Program 2014 state-level distribution map
- ↑ „Geymd eintak“. Náttúrufræðistofnun Íslands. Afrit af upprunalegu geymt þann 21. júlí 2019.
- ↑ Flora of North America, Hieracium alpinum Linnaeus, 1753.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Hieracium alpinum.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Hieracium alpinum.