Fear Factory
Fear Factory er bandarísk þungarokkshljómsveit sem var stofnuð árið 1990. Sveitin hefur verið kennd við undirgreinarnar groove metal, industrial metal, dauðarokk og nu-metal. Textar hljómsveitarinnar fjalla einkum um tækniþróunina og að hún eigi eftir að koma mannkyninu í koll, að mannkynið verði úrelt og vélarnar taki við. Einkenni tónlistarinnar er hraður trommu- og bassataktur ásamt aggressífum öskurstíl.
Ósætti hljómsveitarmeðlima hefur sett sitt mark á bandið. Eftir aldamót hættu bassa- og trommuleikarinn, Christian Olde Wolbers og Raymond Herrera.
Árið 2020 hætti söngvarinn, Burton C. Bell og hélt sig við sólóband sitt, Ascension of the Watchers. Gítarleikarinn Dino Cazares ákvað að halda áfram með hljómsveitina og fann hann nýjan söngvara, Ítalann Milo Silvestro. [1]
Breiðskífur
[breyta | breyta frumkóða]- Soul of a New Machine (1992)
- Demanufacture (1995)
- Remanufacture (1997)
- Obsolete (1998)
- Digimortal (2001)
- Concrete (2002)
- Archetype (2004)
- Transgression (2005)
- Mechanize (2010)
- The Industrialist (2012)
- Genexus (2015)
- Aggression Continuum (2021)
Meðlimir
[breyta | breyta frumkóða]- Dino Cazares – Gítar, bakraddir (1989–2002, 2009–), bassi (1992, 1995, 2009, 2012, 2015, 2020–), hljómborð (1995), tölvutrommur (2012)
- Mike Heller – Trommur (2012–)
- Tony Campos – Bassi, bakraddir (2015–)
- Milo Silvestro – Söngur (2023–)
Fyrrum meðlimir
[breyta | breyta frumkóða]- Burton C. Bell – Söngur (1989–2002, 2003–2006, 2009–2020), hljómborð (1995)
- Raymond Herrera – Trommur (1989–2002, 2003–2006)
- Christian Olde Wolbers – Bassi, bakraddir (1993–2002, 2003–2006), gítar (2003–2006)
- David Gibney – Bassi (1989–1991)
- Andy Romero – Bassi (1991–1992)
- Andrew Shives – Bassi (1992–1993)
- Byron Stroud – Bassi (2003–2006, 2009–2012)
- Gene Hoglan – Trommur (2009–2012)
- Matt DeVries – Bassi, bakraddir (2012–2015)