Ragnar Bjarnason syngur Nótt í Moskvu og Ship-o-hoj
Útlit
(Endurbeint frá EXP-IM 97)
Nótt í Moskvu og Ship-o-hoj | |
---|---|
EXP-IM 97 | |
Flytjandi | Ragnar Bjarnason, hljómsveit Svavars Gests |
Gefin út | 1962 |
Stefna | Dægurlög |
Útgefandi | Íslenzkir tónar |
Nótt í Moskvu og Ship-o-hoj er 45-snúninga hljómplata gefin út af Íslenzkum tónum árið 1962. Á henni syngur Ragnar Bjarnason tvö lög með hljómsveit Svavars Gests. Hljómsveitina skipuðu auk Svavars, Magnús Ingimarsson, Reynir Jónasson, Gunnar Pálsson og Garðar Karlsson. Útsetning: Magnús Ingimarsson. Platan er hljóðrituð í mono. Upptaka: Ríkisútvarpið. Umslag: Amatörverslunin ljósmyndastofa. Prentun: ÞEGG. Pressun: AS Nera í Osló.