Downton Abbey
Downton Abbey | |
---|---|
Tegund | Drama |
Búið til af | Julian Fellowes |
Höfundur |
|
Leikarar |
|
Upphafsstef | „Did I Make the Most of Loving You?“ |
Tónskáld | John Lunn |
Upprunaland | Bretland |
Frummál | Enska |
Fjöldi þáttaraða | 6 |
Fjöldi þátta | 52 |
Framleiðsla | |
Aðalframleiðandi |
|
Framleiðandi |
|
Staðsetning | Highclere-kastali |
Upptaka | Gavin Struthers |
Lengd þáttar | 47–93 mínútur |
Framleiðsla |
|
Útsending | |
Upprunaleg sjónvarpsstöð | ITV |
Myndframsetning | 1080i HDTV |
Hljóðsetning | Stereo |
Sýnt | 26. september 2010 – 25. desember 2015 |
Downton Abbey eru breskir sjónvarpsþættir sem skapaðir voru af Julian Fellows. Þættirnir hófu göngu sína haustið 2010 og voru sýndir á bresku sjónvarpsstöðinni ITV. Í janúar 2011 var byrjað að sýna þættina á sjónvarpsstöðinni PBS í Bandaríkjunum. Downton Abbey var sýnt hérlendis á RÚV frá haustinu 2010.
Þættirnir sem gerast á tímabilinu 1912 til 1925 segja frá hinni ríku Crawley fjölskyldu og þjónustufólki þeirra. Þá blandast við ýmsir atburðir úr sögunni, eins og fyrri heimstyrjöldin og spænska veikin, sem hafa gríðarleg áhrif á líf Crawley fjölskyldunnar.
Downton Abbey hafa hlotið fjölda verðlauna, eins og Golden Globe, Primetime Emmy Awards og Bafta, en þættirnir hafa verið sýndir í yfir 220 löndum um allan heim.
Söguþráður
[breyta | breyta frumkóða]Þættirnir gerast á ættarsetrinu Downton Abbey í Yorkshire þar sem hin ríka Crawley fjölskylda býr ásamt þjónustufólki sínu. Crawley fjölskyldan samanstendur af jarlinum og jarlsfrúnni af Grantham og þremur dætrum þeirra. Einnig kemur móðir jarlsins mikið við sögu sem og aðrir ættingjar. Fyrsta serían hefst árið 1912 daginn eftir að Titanic sökk. Erfingi jarldæmisins hefur farist með skipinu og því þarf jarlinn, Robert Crawley, að finna nýjan erfingja. Sá reynist vera fjarskyldur frændi, Matthew Crawley, sem er málflutningsmaður af miðstéttarfólki.
Á setrinu starfar margt þjónustufólk en þar er æðstur brytinn Carson. Í fyrsta þætti hefur verið ráðinn nýr einkaþjónn jarslins, John Bates, en söguþráðurinn snýst um samskipti hans við lymskulega þjóninn, Thomas Barrow, sem reynir að gera hvað sem er til að öðlast starf Bates. Með hjálp ungfrú O'Brien, einkaþernu jarlfrúarinnar, reyna þau að koma Bates fyrir kattarnef.
Hlutverk
[breyta | breyta frumkóða]- Hugh Bonneville sem Robert Crawley, jarlinn af Grantham
- Elizabeth McGovern sem Cora Crawley, jarlsfrúin af Grantham
- Michelle Dockery sem Mary Crawley, elsta dóttirin, eiginkona Matthew og síðar eiginkona Henry
- Laura Carmichael sem Edith Crawley, mið dóttirin og síðar eiginkona Bertie
- Jessica Brown Findlay sem Sybil Crawley, yngsta dóttirin og eiginkona Tom
- Maggie Smith sem Violet Crawley, móðir jarlsins
- Dan Stevens sem Matthew Crawley, erfingi jarlsins og eiginmaður Mary
- Penelope Wilton sem Isobel Crawley, móðir Matthew
- Jim Carter sem Charles Carson, bryti og síðar eiginmaður frú Huges.
- Phyllis Logan sem Elsie Huges, ráðskona og síðar eiginkona Carson
- Brendan Coyle sem John Bates, einkaþjónn jarlsins og eiginmaður Önnu.
- Joanne Froggatt sem Anna Bates, þerna og eiginkona Bates.
- Siobhan Finneran sem Sarah O'brien, einkaþerna jarlsfrúarinnar
- Rob James-Collier sem Thomas Barrow, samkynhneigður þjónn
- Allen Leech sem Tom Branson, einkabílstjóri Crawley fjölskyldunnar og síðar eiginmaður Sybil
- Kevin Doyle sem Joseph Molesley, upphaflega bryti Matthews en síðar meir þjónn á setrinu
- Ed Speleers sem James "Jimmy" Kent, þjónn sem Thomas hefur augastað á
- Sophie McShera sem Daisy Mason, eldabuska
- Lesley Nicol sem Beryl Patmore, kokkur Crawley fjölskyldunnar
- David Robb sem Dr. Richard Clarkson, læknir í héraðinu
- Matt Milne sem Alfred Nudgent, þjónn og frændi ungfrú O'Brien
- Samantha Bond sem Rosamund Painswick, systir jarlsins
- Raquel Cassidy sem Phyllis Baxter, einkaþerna jarlsfrúarinnar eftir O'Brien
- Tom Cullen sem Anthony Foyle, Gillingham greifi.
- Michael Fox sem Andrew "Andy" Parker, þjónn
- Matthew Goode sem Henry Talbot, kappakstursmaður og síðari eiginmaður Mary.
- Harry Hayden-Paton sem Herbert "Bertie" Pelham markgreifi af Hexam, eiginmaður Edith
- Thomas Howes sem William Mason, þjónn sem síðar deyr í fyrri heimstyrjöldinni
- Lily James sem Rose MacClaire, frænka Crawley fjölskyldunnar sem síðar flyst til þeirra
- Rose Leslie sem Gwen Dawson, þerna sem verður síðar ritari
- Amy Nuttall sem Ethel Parks, þerna
- Julian Overdeen sem Charles Blake
- Andrew Scarborough sem Timohny "Tim" Drewe, bóndi sem tekur að sér laungetna dóttur Edith
- Cara Theobold sem Ivy Stuart, þerna