Dönsum dátt
Útlit
Dönsum dátt | |
---|---|
T 11 | |
Flytjandi | Örvar Kristjánsson |
Gefin út | 1975 |
Stefna | Harmonikutónlist |
Útgefandi | Tónaútgáfan |
Dönsum dátt er 33 snúninga LP hljómplata gefin út af Tónaútgáfunni árið 1975. Á henni flytur Örvar Kristjánsson tólf harmonikulög. Platan er hljóðrituð í stereo. Upptaka: Tónaútgáfan. Pressun: EMI A/S Danmörk. Ljósmyndir: Norðurmynd. Prentun: Valprent hf Akureyri.
Lagalisti
[breyta | breyta frumkóða]- Frívaktin - Lag: Örvar Kristjánsson
- Svífur um mar - Lag: Stig Olin
- Söngur spætunnar - Lag: Harold Adams
- Í sólbaði - Lag: Pálmi Stefánsson
- Í Norðursjónum - Lag: Örvar Kristjánsson
- Föstudags polki - Lag: George Nordgaard
- Hringdans - Lag: Gamlir húsgangar
- Ballið í Karlstað - Lag: Norskt lag
- Mávaskers valsinn - Lag: Höfundur ókunnur
- Anna Lísa - Lag: Simon Liebich
- Suður um höfin - Lag: Jimmy Ken, Michael Carr
- Stungið af - Lag: Jóhannes Jóhannesson
Textabrot úr opnu plötuumslags
[breyta | breyta frumkóða]Með Örvari á þessari plötu leika þeir Grímur Sigurðsson á guitar og bassa, Gunnar Tryggvason á guitar og bassa, og Júlíus Fossberg á trommur. | ||
— NN
|