Fara í innihald

Borgarhöfn

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Borgarhöfn
LandÍsland
breyta upplýsingum

Borgarhöfn er sveitabær í Suðursveit í Austur-Skaftafellssýslu. Kirkja var í Borgarhöfn til forna og talið að hún hafi verið reist þar um árið 1000. Kirkjan var aflögð árið 1708. Öll jörðin Borgarhöfn var að fornu mati 80 hundruð. Fyrir árið 1743 voru 60 hundruð af jörðinni kóngseign en það ár gaf konungur kirkjunum á Kálfafellsstað og Einholti 30 hundruð hvorri.

Árið 1575 varð mikið sjóslys við Borgarhöfn. Á einum degi fórust um 100 manns af 17 bátum. Líklega lagðist róður af eftir þennan atburð en áður var mikil sjósókn stunduð frá bænum.[1]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Þorsteinn Jósepsson; Steindór Steindórsson (1980). Landið þitt Ísland. Örn og Örlygur. bls. 101 Bindi A-G.
  Þessi landafræðigrein sem tengist Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.