ABO-blóðflokkar
- „ABO“ vísar hingað.
ABO-blóðflokka kerfið er mikilvægasta blóðflokkunarkerfið í blóðgjöf manna. Með ABO er átt við fjóra flokka blóðs: O, A, B og AB.
Kerfið var uppgötvað af Karl Landsteiner, austurrískum meina- og ónæmisfræðingi árið 1901 og hlaut Nóbelsverðlaun í lífeðlis- og læknisfræði fyrir það árið 1930. Það byggir á mótefnum (enska: antibodies) og mótefnavökum (enska: antigens). Mótefnavakarnir sem ABO-blóðflokkakerfið byggir á eru fjölsykrur sem eru fastar í frumuhimnu rauðra blóðkorna en mótefnin myndast í ónæmiskerfinu.[1]
Ástæðan t.d. fyrir því að ekki má gefa manni af O-blóðflokki blóð af öðrum flokki er sú, að hann hefur mótefni í blóði gegn þeim sykrum sem vantar utan á rauðu blóðkornin í honum. Blóðið hlypi þá í kekki. Hins vegar má einstaklingur í O-blóðflokki gefa öllum blóð þar sem að í blóði hans er enginn vaki sem mótefni væntanlegs blóðþega gæti ráðist gegn. Einstaklingur í AB-blóðflokki er með bæði A -og B-vaka en engin mótefni. Hann getur þá þegið blóð úr öllum flokkum en aðeins gefið blóð til einstaklings í sama blóðflokki. [2].
Breytileiki blóðflokka tengist líklega náttúruvali en blóðflokkar geta haft áhrif á næmi fyrir smitsjúkdómum. Bakteríur og veirur festast á frumur með því að bindast yfirborðssykrum og þar skiptir tegund sykrunnar máli. [3]
Tíðni blóðflokka er mismunandi eftir löndum og kynþáttum en O-flokkur er algengastur í heiminum með 63% hlutfall.
Á Íslandi eru um:
- 56% í blóðflokki O
- 32% í blóðflokki A
- 10% í B
- 3% í blóðflokki AB. [4]
Tengt efni
[breyta | breyta frumkóða]Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Hvernig verkar blóðflokkakerfið? Hvað þýða stafirnir og plús- og mínusmerkin? Vísindavefur. Skoðað 8. jan, 2017.
- ↑ Hvað gerist ef maður í blóðflokki A fær blóð úr blóðflokki B? Vísindavefur. Skoðað 8. jan. 2016.
- ↑ Hví hafa þróast með mannkyninu mismunandi blóðflokkar og hvaða tilgangi gegna þeir í dag? Vísindavefur. skoðað 8. jan. 2017.
- ↑ Hver er algengasti blóðflokkur í heimi? Vísindavefur. Skoðað 8. jan, 2017.