Fara í innihald

Barentseyja

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Sjófuglasvæði
Staðsetning

Barentseyja (norska: Barentsøya) er fjórða stærsta eyjan á Svalbarða og er nefnd eftir Hollendingnum Willem Barentsz sem einna fyrstur kom til Svalbarða í síðari tíð. Barentsz kom þó raunar aldrei sjálfur á eynna né einu sinni sá hana heldur þótti einfaldlega viðeigandi að nefna eitthvað beint eftir honum á svæðinu.[1]

Eyjan liggur á milli Spitzbergen og Eyju Tómasar Edge og er að mestu þakin jöklum.

Flatarmál eyjarinnar er 1 288 km².[2]

Eyjan hefur því sem næst ferkantað kassalaga form og er álíka löng og hún er breið eða um 50 km.[1] Hæsti punktur eyjarinnar er í 397 metra hæð.


Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. 1,0 1,1 Barr, Susan (6. júlí 2021). „Barentsøya“. Store norske leksikon (norskt bókmál). Sótt 13. ágúst 2022.
  2. „Barentsøya“. Polar place names (enska). Norsk polarinstitutt. Sótt 10. ágúst 2022.
  Þessi landafræðigrein sem tengist Noregi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.