Bardagaíþrótt

Bardagaíþrótt eða sjálfsvarnaríþrótt er íþrótt þar sem tveir eða fleiri keppa í bardaga í návígi samkvæmt tilteknum keppnisreglum ýmist með eða án vopna. Dæmi um bardagaíþróttir eru hnefaleikar, glíma og skylmingar. Fólk leggur stund á bardagaíþróttir af ýmsum ástæðum, svo sem fyrir líkamsrækt, sem keppnisíþrótt, í sjálfsvarnarskyni, og til beitingar í slagsmálum og götubardögum.[1] Bardagaíþróttir eru líka hluti af þjálfun hermanna og lögreglu.[2]
Hugtök á borð við „bardagaíþrótt“ eða „sjálfsvarnaríþrótt“ voru búin til til að lýsa hefðbundnum íþróttum frá Austur-Asíu, á borð við jiu jitsu, karate og kung fu.[3] Seinna var tekið að telja með vestrænar íþróttagreinar á borð við skylmingar og hnefaleika, þar sem barist er í návígi. Fjölmargar hefðbundnar vestrænar íþróttagreinar eiga sér uppruna sem tengist þjálfun í hernaði. Dæmi um það eru spjótkast, kringlukast, bogfimi og hindrunarstökk. Fimmtarþraut og nútímafimmtarþraut eru samsettar fjölíþróttagreinar sem áttu upphaflega að endurspegla þjálfun hermanna.[4] Íþróttagreinar á borð við skotfimi, bogfimi og spjótkast, sem ekki fela í sér bardaga milli tveggja keppenda í návígi, eru yfirleitt ekki flokkaðar með bardagaíþróttum.
Bardagaíþróttir eru flokkaðar með ýmsu móti, til dæmis eftir því hvort þær byggist á höggum og spörkum, eða glímutökum, lásum og köstum; og eftir því hvaða vopn eru notuð. Sumar bardagaíþróttir eru fyrst og fremst sjálfsvarnaríþróttir og í sumum þeirra er lögð meiri áhersla á andlega þjálfun, siðaboðskap, íhugun og innri frið, en líkamlega færni.[5]
Tegundir
[breyta | breyta frumkóða]Án vopna
[breyta | breyta frumkóða]Með vopnum
[breyta | breyta frumkóða]Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Godfrey, E. (2010). „Urban heroes versus folk devils: civilian self-defence in London (1880-1914)“. Crime, Histoire & Sociétés/Crime, History & Societies. 14 (2): 5–30.
- ↑ Öztürk, E.; Yanar, N. (2021). „Comparison of Defence Arts by Country in Law Enforcement Education“. Scientific Bulletin. 26 (2): 168–175. doi:10.2478/bsaft-2021-0020.
- ↑ Þór Indriðason (1. febrúar 1981). „Júdó“. Skinfaxi. bls. 14-15.
- ↑ Heck, S. (2011). „Modern Pentathlon and the First World War: When Athletes and Soldiers Met to Practise Martial Manliness“. The International Journal of the History of Sport. 28 (3–4): 410–428. doi:10.1080/09523367.2011.544860.
- ↑ Corcoran, John (1992). The Martial Arts Companion: Culture, History, and Enlightenment. Mallard Press. ISBN 0-7924-5762-5.