Andrej Sílnov
Útlit
(Endurbeint frá Andrey Silnov)
Andrej Silnov (rússneska: Андрей Сильнов, fæddur 9. september 1984 í Sjakti) er rússneskur hástökkvari. Hann sigraði hástökkskeppni karla á Ólympíuleikunum 2008.
Silnov tók gull á Evrópumótinu 2006 þegar hann stökk 2,36 metra. Þar með bætti hann gamalt evrópumet Steinars Hoen frá árinu 1994 um einn sentimetra. Viku eftir Evrópumótið stökk Silnov 2,37 metra í Mónakó en það var besta stökk ársins.[1]
25. júlí 2008 setti hann persónulegt met á London Grand Prix er hann stökk 2,38 metra og náði þá síðasta sætinu í rússneska frjálsíþróttaliðinu fyrir ÓL-08.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Andrej Sílnov.