Alfred Jodl
Útlit
Alfred Jodl (10. maí 1890 – 16. október 1946) var herforingi (þ. Generaloberst) í Þriðja ríkinu og var annar af æðstu stjórnendum þýska hersins í síðari heimsstyrjöld. Hann var sóttur til saka í réttarhöldunum í Nürnberg, fundinn sekur og dæmdur til dauða. Jodl var hengdur sem stríðsglæpamaður árið 1946.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Alfred Jodl.