Matkempa
Matkempa | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Agaricus bisporus (J.E.Lange) Imbach |
Matkempa (eða ætisveppur) (fræðiheiti Agaricus bisporus) er kemputegund og algengur matsveppur. Á Íslandi hefur svepparæktun nánast einskorðast við þessa tegund, en tveir stofnar hennar eru algengastir, hvítir og brúnleitir.
Ræktun
[breyta | breyta frumkóða]Ræktun á Agaricus bisporus hófst í Frakklandi þegar grasafræðingurinn Olivier de Serres tók eftir að þegar sveppaþræðir voru fluttir á nýjan stað þá uxu þar upp sveppir. Í fyrstu fór svepparækt þannig fram að ræktendur leituðu að stöðum á túnum og engjum þar sem sveppir uxu og settu moldina þar út í rotmassa. Árið 1893 var fundin aðferð til að framleiða hreint sveppaþel. Ræktuðu sveppirnir voru í fyrstu ljósbrúnir en árið 1926 fann sveppabóndi í Pennsylvaníu hvítt afbrigði í svepparækt sinni og varð það vinsælt og er þetta stökkbreytta afbrigði nú mikið ræktað.