Aage Lauritz Petersen
Aage Lauritz Petersen (14. desember 1879 – 2. mars 1959) var danskur verkfræðingur, símstöðvarstjóri í Vestmannaeyjum og lengst af fulltrúi á Skattstofunni í Reykjavík.
Ævi og starfsferill
[breyta | breyta frumkóða]Aage Lauritz Petersen var sonur dansks málafærslumanns, August Ferdinand Petersen og konu hans Alvilda Laurine Petersen.[1] Í Kaupmannahöfn kynntist hann íslenskri stúlku, Guðbjörgu Jónínu Gísladóttur. Þau eignuðust saman dóttur árið 1902, fluttust árið eftir til Vestmannaeyja og gengu þar í hjónaband.[2]
Við komuna til Íslands var Petersen sagður verkfræðingur og notaði hann þann titil alla tíð. Engin sérstök ástæða er til að draga þann menntunartitil í efa, en notkun verkfræðingsheitisins var þó stundum lausari í reipunum í byrjun tuttugustu aldar en síðar varð. Petersen varð t.d. ekki félagi í Verkfræðingafélagi Íslands, en slíkt var raunar ekki óalgengt fyrir menn sem horfið höfðu til annarra starfa en heyrðu beinlínis til verkfræði. Í grein í Tímariti Verkfræðingafélagsins árið 1946 um hafnarframkvæmdir í Vestmannaeyjum, þar sem Petersen kom nokkuð við sögu, er komist svo að orði að hann „hafi um tíma stundað verkfræðinám“.[3]
Í ársbyrjun 1905 var fyrsta heilbrigðissamþykktin sett í Reykjavík og þar með stofnað embætti heilbrigðisfulltrúa. Petersen var ráðinn til starfsins og bar fyrstur manna þann titil hér á landi. Snerust störf hans að miklu leyti um skólp- og fráveitumál sem voru í miklum ólestri í bænum á þeim tíma. Petersen var jafnframt ráðinn til að vinna nákvæman uppdrátt að bæjarlandinu en um mitt ár 1908 sagði hann sig frá því verki.[4] Um svipað leyti fluttust Petersen og Guðbjörg aftur til Vestmannaeyja. Þar létu þau til sín taka og voru í hópi stofnenda Leikfélags Vestmannaeyja árið 1910, þar sem Petersen var formaður.[5] Þau slitu samvistum árið 1915 og áttu þá fjögur börn.
Vestmannaeyjar komust í símsamband við fastalandið sumarið 1911. Um leið var reist símstöð í Vestmannaeyjum og var Petersen gerður að stjórnanda hennar. Árið 1915 eignuðust Eyjamenn sína fyrstu rafveitu og sinnt Petersen stjórn hennar meðan á dvölinni í Vestmannaeyjum stóð. Hann kvæntist á nýjan leik árið 1917, Guðnýju Magnúsdóttur úr Reykjavík, sem komið hafði til Vestmannaeyja sem símstöðvarstúlka eða símþjónn, eins og það var kallað. Þau eignuðust alls fjögur börn.[6]
Árið 1919 fluttust Petersen og Guðný til Reykjavíkur. Hann var ráðinn til starfa á Skattstofunni og var í fyrstu eini starfsmaður hennar auk Skattstofustjóra. Þar vann hann út starfsævina. Aage Lauritz Petersen fékk íslenskan ríkisborgararétt og náði fullkomnu valdi á tungumálinu, svo mjög að hann tókst á við að smíða íslensk orð yfir ýmis hugtök tengd störfum hans að skattamálum.[7] Hann lést árið 1959.