64
Útlit
Árþúsund: | 1. árþúsundið |
---|---|
Aldir: | |
Áratugir: | |
Ár: |
64 (LXIV í rómverskum tölum) var 64. ár 1. aldar og hlaupár sem hófst á sunnudegi samkvæmt júlíanska tímatalinu. Í Rómaveldi var árið þekkt sem „ræðismannsár Bassusar og Crassusar“, eða sem árið 817 ab urbe condita. Það hefur verið þekkt sem árið 64 frá því á miðöldum þegar Anno Domini-tímatalið, hið Kristna tímatal, var tekið upp.
Atburðir
[breyta | breyta frumkóða]- 19. júlí - Bruninn mikli í Róm: Eldsvoði eyðilagði hálfa borgina. Bæði kristnum mönnum og Neró keisara var kennt um að hafa kveikt eldinn.
- Ofsóknir á hendur kristnum mönnum hófust í valdatíð Nerós keisara.
- Kúsjanaveldið lagði bæinn Taxiliu í rúst.
- Fyrra almenna bréf Péturs er talið ritað þetta ár samkvæmt hefð.
- Seneca yngri lýsti því yfir að allir menn væru jafnir, líka þrælar.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- Júlía Flavía, dóttir Títusar keisara og ástkona Dómitíanusar keisara.
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 13. október - Pétur postuli (f. 1 f.Kr.).
- Páll postuli (hið fyrsta) (f. 5 e.Kr.).
- Yin Lihua keisaraynja í Kína (f. 5 e.Kr.).