Þverá (Laxárdal)
Útlit
Þverá í Laxárdal er bær og kirkjustaður í Laxárdal í Suður-Þingeyjarsýslu. Kirkjan er annexía frá Grenjaðarstað. Á Þverá er gamall torfbær af norðlenskri gerð. Í gamla torfbænum var elsta kaupfélag landsins, Kaupfélag Þingeyinga stofnað árið 1882. Torfbærinn hefur verið í umsjón Þjóðminjasafns Íslands frá árinu1968. Í þjóðminjasafninu er varðveitt altaristafla úr Þverárkirkju.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Þverá í Laxárdal (Þjóðminjasafn Íslands)
- Torfbærinn í Laxárdal sögufrægar gersemar (visir.is 26. febrúar 2018)
- Altaristafla úr Þverárkirkju (sarpur.is)