Þrívítt form
Útlit
Þrívíð form eru rúmfræðileg form, sem hafa þrjár víddir: lengd, breidd og hæð. Dæmi:
Kúla
[breyta | breyta frumkóða]Kúla er einfaldasta þrívíða formið, og einkennist af því að allir punktar á yfirborði hennar eru í sömu fjarlægð frá miðju hennar.
Sívalningur
[breyta | breyta frumkóða]Sívalningur hefur hringlaga grunnflöt, og hliðar hans standa beint upp af grunnfletinum.
Keila
[breyta | breyta frumkóða]Keila hefur hringlaga grunnflöt, en hliðar hans stefna inn að miðju eftir því sem ofar dregur og enda í punkti.
Teningur
[breyta | breyta frumkóða]Teningur hefur ferningslaga grunnflöt og ferningslaga hliðar sem standa upp af grunnfletinum