Þórir Bergsson
Útlit
Þórir Bergsson (skáldanafn Þorsteins Jónssonar) (23. ágúst 1885 í Hvammi í Norðurárdal - 14. nóvember 1970) var íslenskur rithöfundur og einn af stofnendum og heiðursfélagi í Félagi íslenskra rithöfunda.
Þorsteinn Jónsson var sonur Jóns Magnússonar prests í Mælifelli í Skagafirði og Steinunnar G. Þorsteinsdóttur. Þórir var um skeið póstafgreiðslumaður og síðar fulltrúi og deildarstjóri í Landsbanka Íslands frá 1914—1943. Þá var hann einnig endurskoðandi Happdrættis Háskóla íslands fyrstu 26 starfsár þess. Hann var kvæntur Gróu Árnadóttur, dóttir Árna Þorsteinssonar prests á Kálfatjörn.
Helstu rit
[breyta | breyta frumkóða]- Sögur, 1939,
- Vegir og vegleysa, skáldsaga 1941,
- Nýjar sögur, árið 1944,
- Hinn gamli Adam, 1947,
- Ljóðakver 1947,
- Hvítsandar, skáldsaga 1949,
- Á veraldar vegum, sögur, 1953,
- Frá morgni til kvölda, 1953,
- Sögur 1911—1956,
- Ritsafn I—III, 1965