Frumlag
Frumlag (skammstafað sem frl. eða fruml.) er hugtak í málfræði. Frumlag er fallorð, fallsetning, fallháttur eða bein ræða sem stendur alltaf í nefnifalli, og gerir það sem sögnin segir.
Frumlag er gerandinn í setningunni- þ.e.a.s. frumlag táknar þann sem gerir (er eða verður) það sem umsögnin segir.
Auðvelt er að finna frumlagið með því að spyrja „hver gerði“ það sem sögnin segir.
Ópersónuleg frumlög
[breyta | breyta frumkóða]Frumlög ópersónulegra sagna eru aldrei í nefnifalli og skiptast í tvo hópa; aukafallsfrumlög og gervifrumlagið „það“ (einnig leppur eða aukaliður).
Aukafallsfrumlög skiptast í:
- Þolfallsfrumlög sem eru frumlög í þolfalli (mig langar, mig svíður í sárið, mig brestur kjark)
- Þágufallsfrumlög sem eru frumlög í þágufalli (mér stendur á sama, mér svíður tjónið, mér líst vel á þetta)
- Eignarfallsfrumlög eru mjög sjaldgæf frumlög í eignarfalli (hér gætir drauga, þess kennir víða, þess þarf ekki)
Aukafallsfrumlag er stundum nefnt frumlagsígildi.
Dæmi um gervifrumlag er orðið „það“ í setningunni „það snjóaði lítið í vetur“ en þegar gervifrumlaginu er sleppt kallast það frumlagseyða: „nú snjóar lítið“.
Dæmi
[breyta | breyta frumkóða]- Húsfreyjan eldaði matinn. (hver eldaði matinn?)
- Allir eru duglegir. (hverjir eru duglegir?)
- Maðurinn lærði bókina vel. (hver lærði bókina vel?)
Tengt efni
[breyta | breyta frumkóða]- Andlag
- Veðursögn (ópersónuleg sögn sem ekki tekur með sér frumlag)