Ítölsku vötnin
Útlit
Ítölsku vötnin (Ítalska: Grandi laghi prealpini) er hópur stórra stöðuvatna við Suður-Alpafjöll, þ.e. á Norður-Ítalíu. Lítill hluti þeirra er í Suður-Sviss. Vötnin mynduðust við hopun ísaldarjökuls á svæðinu. Stærstu vötnin eru yfir 100 km2: Garda, Maggiore og Como. Loftslag er milt við vötnin og eru þau vinsæll áfangastaður ferðamanna.
Vötnin frá vestri til austurs
[breyta | breyta frumkóða]- Orta-vatn
- Maggiore-vatn (hluti í Sviss)
- Varese-vatn
- Lugano-vatn (hluti í Sviss)
- Como-vatn
- Iseo-vatn
- Idro-vatn
- Garda-vatn