Savanna tríóið - Ég ætla heim
Ég ætla heim | |
---|---|
SG - 011 | |
Flytjandi | Savanna tríóið |
Gefin út | 1967 |
Stefna | Þjóðlög |
Útgefandi | SG - hljómplötur |
Stjórn | Tony Russell |
Ég ætla heim er 33 snúninga LP hljómplata gefin út af SG - hljómplötum árið 1967. Á henni flytur Savanna tríóið þjóðlög. Hljóðritun plötunnar fór fram við hin fullkomnustu skilyrði í London og er í stereo. Bassaleikari er enskur, Bill Sutcliffe en yfirumsjón með hljóðritun hafði Tony Russell.
Lagalisti
[breyta | breyta frumkóða]- Hafmeyjan - Lag - texti: Írskt þjóðl. — Sig. Þórarinss
- Sakura - Lag - texti: Japanskt þjóðl. — Sig. Þórarinss
- Beykirinn í Miðkoti - Lag - texti: Skozkt þjóðl. — Sig. Þórarinss
- Frú McGrath - Lag - texti: Írskt þjóðl. — Sig. Þórarinss
- Það hrygga fljóð - Lag - texti: Írskt þjóðl. — Sig. Þórarinss
- Hvað skal með sjómann? - Lag - texti: Írskt þjóðl. — Sig. Þórarinss
- Í Prinsins höfn - Lag - texti: Raskin — Ólafur Gaukur
- Nonni Jóns - Lag - texti: Írskt þjóðl. — Ólafur Ragnarsson
- Karl og kerling - Lag - texti: Ísl. þjóðlag — Þjóðvísa
- Surtseyjarríma - Lag - texti: Þórir Baldurss. — Sig. Þórarinss
- Brúðarskórnir - Lag - texti: Þórir Baldursson — Davíð Stefánsson
- Ég ætla heim - Lag - texti: Amerískt þjóðl. — Sig. Þórarinss ⓘ
Textabrot af bakhlið plötuumslags
[breyta | breyta frumkóða]Þessari plötu hefði ég helzt viljað gefa heitið ..Savanna-tríóið og Sigurður Þórarinsson", þar sem allir textarnir á fyrri plötuhliðinni, ásamt einum á hinni síðari eru þýddir af Sigurði. Áttundi textinn er auk þess eftir hann, hin kunna Surtseyjarríma sem tríóið hefur flutt í útvarpi og sjónvarpi.
Textar Dr. Sigurðar Þórarinssonar, hvort sem þeir hafa verið þýddir eða frumsamdir eru slíkar gersemar að þeir munu líklega seint gleymast. En platan fékk heiti síðasta lagsins: "Ég ætla heim" því þeir Þórir Baldursson, Troels Bendtsen og Björn Björnsson ætla hver til síns heima. Skólanámi og þjóðlagasöng er lokið. Þeir hafa haslað sér völl í þjóðlífinu. Þórir er söngkennari og söngstjóri. Troels er kaupsýslumaður og Björn sér um allt er viðkemur leikmyndum í sjónvarpinu. Við sjáum að baki vandaðasta skemmtiatriðinu, sem fram hefur komið hér á landi um árabil, en söngur þeirra geymist á hljómplötum. Áður hafa komið út tvær hæggengar SG-hljómplötur með þeim, en líklega er þessi bezt þeirra allra. |
||