Asklepiosarstafurinn
Útlit
(Endurbeint frá Æskulápsstafur)
Asklepiosarstafurinn (eða Æskulápsstafurinn) er stafur eða sproti sem snákur hlykkjast um og er tákn læknisvísindanna, enda var Asklepios, sem stafurinn er kenndur við, guð læknisfræðinnar og lækninga í grískri goðafræði. Asklepiosarstafinum er oft ruglað saman við Hermesarstafinn.