Keta
Útlit
Keta er gamalt höfuðból og kirkjustaður á austanverðum Skaga og er í Sveitarfélaginu Skagafirði.[1]
Kirkjan í Ketu var útkirkja frá Hvammi í Laxárdal en er nú þjónað frá Sauðárkróki, eftir að Hvammsprestakall var lagt niður 1975. Ketusókn teygir sig yfir í Húnavatnssýslu því að nyrstu bæir á Skaga, Húnavatnssýslumegin, tilheyra sókninni.[2]
Frá Ketu var útræði fyrr á tíð og jörðinni fylgja reka- og silungsveiðihlunnindi. Í landi Ketu eru Ketubjörg, tilkomumikil sjávarbjörg sem eru leifar af eldstöð frá ísöld. Þar er stuðlaberg, gatklettar og drangar og úti fyrir rís úr sjó stakur drangur sem heitir Kerling.[1]
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ 1,0 1,1 „Keta á Skaga - NAT ferðavísir“. 3. apríl 2022. Sótt 4. september 2024.
- ↑ „Ketukirkja“. web.archive.org. 5. mars 2016. Afrit af upprunalegu geymt þann 5. mars 2016. Sótt 4. september 2024.