Fara í innihald

Zomba

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Bygging Háskólans í Malaví í Zomba

Zomba er sveitarfélag í suðurhluta Malaví. Sveitarfélagið liggur í Shire-hálendinu og fólksfjöldi er 100 þúsund (2005). Í Zomba er stjórnsýsla Zomba héraðsins og var höfuðborg Nyasalands fram til sjálfstæðis Malaví árið 1964. Í bænum er einnig hluti af Háskólanum í Malaví (University of Malawi) og er þar meðal annars kennd mannfræði, vísindi, lögfræði, félagsfræði og kennslufræði. Þar er einnig rekinn grunnskóli á vegum ÞSSÍ.