Fara í innihald

Vinulág

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá Vinalág)
Vinulág
Mynd af vinuláginni.
Auðkenni
TA98A05.1.01.007
TA2222
FMA59819
Líffærafræðileg hugtök

Vinulág[1][2] er lóðrétt dæld eða lægð í eftri vörinni sem liggur undir miðsnesinu á fólki að amorsboga.

Vinulág heitir philtron (φιλτρον) á grísku, sem kemur úr philein (φιλειν) sem merkir „að elska, kyssa“. Íslenska orðið vinulág er hugsað rétt eins og það gríska það er að segja „lág“ (sem merkir „dæld“) vinkonunnar eða vinar. Þetta nýyrði er talið komið frá Bjarna Pálssyni, landlækni. Nokkrir sem skrifuðu pistlahöfundi íðorðagreina í Læknablaðinu vildu um tíma nefna þetta miðsnesisgróf[3] og efrivararrennu[3], en hvorgt heitið hefur þó náð festu í íslensku máli.

Meinafræði

[breyta | breyta frumkóða]

Ef vinulágin nær ekki að myndast fullkomlega getur myndast skarð í vör. Flöt eða slétt vinulág getur verið merki um að móðir viðkomandi hafi neytt áfengis á meðgöngutíma.

  1. Íðorðapistlar 1-130; 095-Orðabanki á Netinu Vinulág
  2. „Beyging orðsins „vinulág". á Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls
  3. 3,0 3,1 Íðorðapistlar 1-130; 095-Orðabanki á Netinu Philtrum