Villarreal
Útlit
Vila-real (valensíska) (spænska: Villarreal ) er borg í Castellón-héraði, í Sjálfstjórnarsvæðinu Valensía. Borgin er 7 km suður af höfuðstað héraðsins Castelló de la Plana og hefur um 51.000 íbúa (2010). Vila-real þýðir konunglega borgin en hún var stofnuð árið 1274 af Jaime I konungi af Aragon. Keramíkframleiðsla er mikilvægur atvinnuvegur. Villareal CF er knattspyrnulið borgarinnar.
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Villarreal.