Verðbréfahrunið á Wall Street 1929
Útlit
Wall Street hrunið 1929 var umfangsmikið efnahagshrun sem átti sér stað í október 1929. Hrunið átti sér stað í kjölfarið á mikilli hækkun á verðbréfum sem hrundu skyndilega í verði en afleiðingar hrunsins urðu gríðarlegar en í kjölfar hrunsins kom kreppan mikla sem stóð í heilan áratug.[1] Herbert Hoover var nýtekinn við embætti forseta Bandaríkjanna þegar hrunið átti sér stað og er talið að viðbrögð hans við kreppunni hafi átt stóran þátt í því að hann náði ekki endurkjöri 1932.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Hvað var kreppan mikla og hvenær átti hún sér stað?“. Vísindavefurinn. Sótt 4. janúar 2025.