Vígslustig klerka
Útlit
Vígslustig klerka á miðöldum voru sjö, sem skiptust í fjórar lægri vígslur og þrjár æðri vígslur.
Lægri vígslur voru:
- Ostiarius (latínu: „dyravörður“) — Hlutverk: Dyravörður og hringjari í kirkju.
- Lector (latínu: „lesandi“) — Hlutverk: Lesari við tíðagjörð.
- Exorcista (latínu: „særingamaður“) — Hlutverk: Aðstoðarmaður við skírn og fleiri athafnir.
- Acoluthus (latínu: „stuðningsmaður“[1]), stundum ritað akólútus eða akólútur — Hlutverk: Ljósberi við messur.
Æðri vígslur voru:
- Undirdjákni eða súbdjákn — Hlutverk: Aðstoðarmaður við messuflutning.
- Djákni eða djákn — Hlutverk: Aðstoðarmaður við messuflutning.
- Prestur — Hlutverk: Öll venjubundin þjónusta í söfnuði.
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]- Kristni á Íslandi I, Rvík 2000, bls. 220.
Neðanmálsgreinar
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Hið latneska orð hefur margar ritmyndir: acolytus, acolythus, acolitus eða acoluthus.